Nýsköpunarsjóður atvinnulifsins

Lán með breytirétti PDF  | Prenta |  Senda

Nýsköpunarsjóður getur veitt nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum lán með breytirétti í hlutafé.
Lánin eru veitt til áhugaverðra fjárfestingakosta, þar sem ekki er talið tímabært að leggja fram hlutafé í viðskiptahugmyndina og einnig til fyrirtækja sem sjóðurinn hefur þegar fjárfest í og vill ekki auka hlut sinn í félaginu að svo stöddu.

Til að hægt sé að taka afstöðu til þess hvort áhugavert sé að veita fyrirtæki lán með breytirétti þarf að liggja fyrir viðskiptaáætlun eða sambærileg greinargerð um stöðu fyrirtækisins og framtíðarmöguleika. Ársreikningur félagsins, fyrir síðasta starfsár, þarf að liggja fyrir eða milliuppgjör, staðfest af endurskoðanda, sé langt liðið á rekstrarárið.

Hvernig lán eru “lán með breytirétti”?
Með lánum með breytirétti hefur Nýsköpunarsjóður einhliða heimild til að breyta þeim í hlutafé í viðkomandi fyrirtæki á fyrirfram ákveðnu gengi. Gerður er sérstakur lánssamningur þar sem skilyrði sjóðsins eru tiltekin og gerð er krafa um að heimild til breytiréttar séu færð inn í samþykktir félagsins.

Á hvaða kjörum eru lánin og hvernig eru þau endurgreidd?
Lán sjóðsins bera breytilega vexti allt eftir því hversu mikil áhætta er talin fylgja lánveitingunni en horft er til þess hverjir samstarfsaðilar sjóðsins eru í þeirri fjármögnun sem verið er að fara út í, en lögð er áhersla á að sjóðurinn sé ekki eini fjármögnunaraðilinn. Mat á áhættunni er í höndum starfsmanna Nýsköpunarsjóðs.

Nýti Nýsköpunarsjóður ekki rétt sinn til að breyta láninu í hlutafé, er samið um endurgreiðslu lánsins fyrir fram í lánssamningnum. Nýti sjóðurinn hins vegar rétt sinn til að breyta láninu í hlutafé er í öllum tilvikum um að ræða uppgreiðsluverðmæti lánsins þ.e.a.s. upphaflegur höfuðstóll með áföllnum vöxtum.

Hver veitir frekari upplýsingar um lán með breytirétti?
Frekari upplýsingar um lán með breytirétti er hægt að fá með því að hafa samband við starfsmenn sjóðsins í síma 5101800 eða með tölvupósti Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.

 

Ársskýrsla NSA 2009

Hægrismelltu á myndina
til að ná í ársskýrsluna.
Forsíða arrow Um sjóðinn arrow Lán með breytirétti

Lán með breytirétti

Design templateLán til nýsköpunar- og sprotafyrirtækja með breytirétti í hlutafé. Meira...

Skjalasafn

Hér er að finna ýmis skjöl sem hægt er að sækja. Meira...

Innranet NSA

 Joomlart ForumÞetta er innri vefur NSA og aðeins opinn starfsmönnum og samstarfsaðilum. Meira...