|
Meginstarfsemi Nýsköpunarsjóðs fellst í kaupum á
hlutafé í nýsköpunar- og sprotafyrirtækjum en fyrir framlag sjóðsins
eignast hann hlutdeild í fyrirtækinu. í samræmi við það verðmat sem
eigendur viðskiptahugmyndarinnar og Nýsköpunarsjóður koma sér saman um.
Meginreglan við fjárfestingar sjóðsins er sú, að aðrir fjárfestar komi
á sama tíma að fyrirtækinu til að tryggja að nægjanlegt fjármagn sé til
staðar til að fylgja viðskiptahugmyndinni eftir.
Stjórn
Nýsköpunarsjóðs ákveður árlega hversu mikið fjármagn verður til
ráðstöfunar til kaupa á hlutafé í nýjum fyrirtækjum og hversu miklu
verður varið til þess að fylgja eftir fyrri fjárfestingum sjóðsins.
Eru takmarkanir á þátttöku sjóðsins í einstökum viðskiptahugmyndum?
Við
mat á þátttöku Nýsköpunarsjóðs í sprotafyrirtæki er fyrsta meginreglan
sú að viðskiptahugmyndin má ekki vera í beinni samkeppni við starfandi
fyrirtæki á innanlandsmarkaði. Því þarf að vera tryggt, að
viðskiptahugmyndin hafi ákveðið nýsköpunargildi hér á landi. Enn fremur
þarf hugmyndin að uppfylla væntingar sjóðsins m.t.t. ávöxtunar á því
fjármagni sem sett er í viðskiptahugmyndina.
Hvernig er fjárfestingatækifærum komið á framfæri við Nýsköpunarsjóð?
Með
öllum fjárfestingatækifærum þarf að liggja fyrir fullbúin
viðskiptaáætlun sem lýsir viðskiptahugmyndinni og þeim forsendum sem
liggja að baki. Mikilvægt er, að áætlunin sé byggð á raunhæfum
forsendum, að fjallað sé um mögulega útgöngu fjárfesta og væntanlegan
arð af fjárfestingunni, gangi áætlanir eftir.
Hvað tekur langan tíma fyrir sjóðinn að ákveða hvort áhugi sé á þátttöku í fyrirtækinu eða hugmyndinni?
Einu
sinni í viku funda starfsmenn sjóðsins og fara yfir þau
fjárfestingatækifæri sem ætlunin er að skoða. Á þeim fundum er settur
ábyrgðaraðili á hvert mál en falli þau ekki að starfsemi sjóðsins er
það yfirleitt tilkynnt til forsvarsmanns viðskiptahugmyndarinnar innan
14 daga frá því að gögnin hafa verið skoðuð af ábyrgðaraðila innan
sjóðsins. Að öðrum kosti er farið ítarlega yfir viðskiptaáætlun
fyrirtækisins. Ef einhver gögn vantar að mati starfsmanna sjóðsins er
eftir þeim kallað við fyrsta tækifæri. Næsta skref er að ábyrgðaraðili
verkefnisins hittir frumkvöðulinn og aðra aðstandendur
viðskiptahugmyndarinnar, þar sem hann eða þeir kynna hugmyndina og
viðskiptaáætlun sína í heild sinni.
Sá tími sem getur liðið
frá því að fjárfestingatækifæri berst sjóðnum og þar til einhver
ákvörðun liggur fyrir getur tekið allt frá 14 dögum, ef umsóknin fellur
ekki að starfsemi sjóðsins, upp í nokkra mánuði, allt eftir eðli
viðskiptahugmyndarinnar og hversu flókin og viðamikil hún er. Ekki er
óalgengt, bæði hér á landi og erlendis, að það geti tekið allt að 6
mánuði að ganga endanlega frá fjárfestingu í viðskiptahugmynd.
Fjárfesting Nýsköpunarsjóðs, hvað felur hún í sér?
Taki
Nýsköpunarsjóður ákvörðun um að fjárfesta í viðskiptahugmynd, þarf að
byrja á því að tryggja það að öll þau skilyrði sem sett eru fyrir
aðkomu sjóðsins, séu uppfyllt áður en til útborgunar á hlutafé kemur.
Dæmi um algeng skilyrði af hálfu sjóðsins eru að hið nýja fyrirtæki sé
eigandi að viðskiptahugmyndinni, að fjármögnun félagsins sé að fullu
tryggð, að frumkvöðullinn taki þátt í uppbyggingunni og sé tilbúinn að
leggja sitt af mörkum til að viðskiptaáætlunin gangi eftir. Enn fremur
er nær undantekningarlaust farið fram á að Nýsköpunarsjóður fái mann í
stjórn félagsins. Tilgangur þess er m.a. sá að taka þátt í uppbyggingu
fyrirtækisins og að gæta hagsmuna sjóðsins í félaginu.
Hvenær selur Nýsköpunarsjóður sinn hlut í félaginu?
Þar
sem Nýsköpunarsjóður er oft einn af frumfjárfestum
viðskiptahugmyndarinnar er ljóst að sjóðurinn þarf að hafa fjárhagslega
þolinmæði til að byggja fyrirtækið upp í samræmi við áætlanir. Ekki er
talið óeðlilegt að Nýsköpunarsjóður sé hluthafi í a.m.k. 3-8 ár. Þegar
þar að kemur er það sjálfstætt mat hverju sinni hvenær heppilegast er
fyrir sjóðinn að selja sinn hlut. Eins og gefur að skilja er lögð
áhersla á að sjóðurinn njóti hámarksávöxtunar á það fjármagn sem sett
var í félagið. Þannig getur Nýsköpunarsjóður tekið þátt í enn fleiri
hugmyndum annarra frumkvöðla og fyrirtækja. Við útgöngu sjóðsins úr
fyrirtæki er lögð áhersla á að hagsmunir fyrirtækisins séu tryggðir og
að nýir aðilar sem að fyrirtækinu koma, í stað sjóðsins, hafi burði til
að fylgja fyrirtækinu enn frekar úr hlaði.
Hvar fást frekari upplýsingar?
Ef
þú telur að þú sért með áhugavert fjárfestingatækifæri í höndunum er
hægt að hafa samband við starfsmenn sjóðsins í síma 5101800 eða með
tölvupósti
Þetta netfang er varið gegn sjálfvirkum spam forritum, þú verður að leyfa Javascript í vafranum þínum til að sjá það.
|